Archive for the ‘Uncategorized’ Category

Engin orka = ?

september 29, 2009

Jaeja, eg er skrad i RCA! Viiiiii….

Skraningardagurinn var i gaer, og fyrsta verkefnid okkar var kynnt i leidinni. Ekkert verid ad hangsa neitt sko… Vid sem buum saman og vorum ad byrja i skolanum komum heim snemma i gaerkvoldi alveg buin a thvi. Mjog fyndid thvi vid erum varla byrjud. En thetta er samt svolitid hektiskt, endalausar raedur og kynningar og fyrirlestrar og form og vesen. Fyrsta verkefnid okkar er um themad “No Energy”. Jebb, thid heyrdud rett… ekki venjulega klisjan um “minimum energy” heldur “NO energy”. Thetta er metnadarfullur skoli ha! A kynningunni toludu nokkrir kennarar (sem flestir eru mjog haefileikarikir honnudir eda listamenn) um themad, sem var mjog spennandi ad hlusta a. Svolitid samt eins og ad vera staddur i “brjaladra visindamanna skola” thvi umraedurnar skoppudu a milli visinda, heimspeki, dulspeki og lista… allt i graut og a tvofoldum hrada. En eg filidda! En eg var semsagt orkulaus gjorsamlega eftir ad hafa farid yfir grundvallaratridi edlisfraedinnar a hundavadi og horft a myndir af handgerdum
ristavelum, kuk-framleidsluvelum, fljotandi kvikindum, geimskipum og eilifdarvelum… medal annars.

I dag var kynning a verkstaedunum… sem eru alveg frabaer! Thad er haegt ad gera ALLT i thessum skola. Algjor luxus. Thad er reyndar frekar litid plass… en eg meina… skolinn er med 5 axis (oxla?) 3D fraesivel, plastmotunaradstodu og laserskurd og og og… ! Kynningin var i 3 tima an hles. Uff. Eins og thad var gaman ad sja thetta allt tha er ekki skemmtilegt ad standa i hop a hordu golfi i 3 tima og hlusta. Algjort orkuleysi nuna.

Eg held vid seum um 30 eda 40 a hverju ari, og deilum vinnustofu med 2.ari. Thad er mjog snidugt. Thetta verdur lika svolitid odruvisi en i LHI thar sem hvert ar deildi rymi saman. Eg var eina manneskjan i minum bekk sem nytti mer vinnuadstoduna uppi i skola. Allir hinir sem voru med mer a ari unnu ad mestu i tolvum eda med arkitektamodel eda fot, svo eg var undir stanslausu spurningaflodi fra ollum sem gengu fram hja bordinu minu.. “Hvad ertu eiginlega ad gera??”, af thvi ad eg var su eina i ryminu sem var ad gera eitthvad “skrytid”. Nuna eru allir ad gera eitthvad “skrytid”, svo madur aetti ad fa frid.

Annars bara allt gott ad fretta, sambudin gengur agaetlega, en thad a pottthett eftir ad reyna betur a hana samt. Thetta er ju sambud 5 listamanna… flestir med stort skap! En thad er mus i eldhusinu… og gat i botninum a badkarinu a efri haedinu svo sturtan lekur i gegnum eldhusloftid hja okkur. Um daginn var thetta ordid svo slaemt ad thad var bara power shower i eldhusinu, sem lak i gegnum ljosin, thannig ad vid fengum diskoljos lika. En nuna erum vid buin ad troda einhverju i gatid i badkarinu svo thetta er haett -i bili, en loftid er allt i vatnsskemmdum og myglu. Ekki gott. En vid erum buin ad tala vid huseigandann morgum sinnum, en hann aetlar loksins ad kikja i heimsokn a okkur a manudaginn. Svo vid vonum ad vid faum allavega nytt badkar tha… adur en vid dettum nidur i gegnum eldhusloftid. Annars er husid bara agaett. :)

Engin orka = daudi?

Thorunn

London

september 16, 2009

Komin til London.

Husid fint. Medleigjendur mjog finir og skemmtilegir. Stadseting god. Herbergi voda kosi… med gomlum arni og vidargolfum (ekki haegt ad nota arininn samt…). Er reyndar buin ad sofa frekar illa tharna sidustu naetur, en thad lagast vonandi… gaeti bara verid eitthvad jetlag eda stress eda eitthvad… veitiggi. Svaf samt mjog vel allsstadar i Indlandi!

Astaedan fyrir thvi hvad eg er litid buin ad vera i sambandi a netinu og ekki buin ad hlada inn neinum myndum er su ad eg er hvorki med tolvu ne net. Onnur atridi hafa thurft ad ganga fyrir thegar eg hef farid a netkaffi. Er nuna a bokasafninu i skolanum minum ad panta tolvu i gegnum netid, thurfti ad logga mig inn a skolanetid til ad fa skolaafslatt a tolvunni. Svo um leid og eg fae hana, i kringum 29.sept, tha skelli eg inn gommu af myndum fra Indlandi og verd meira a netinu. Jeij!

Annars er skraning i skolann 28.septemer og eg held ad fyrsti skoladagurinn se i kringum 1. eda 2.Oktober. Svo eg er bara ad koma mer fyrir thangad til tha, fer liklega til coventry a fostudaginn ad na i dot sem vid skildum eftir thar, og vonandi hjalpa Tomoko eitthvad. London Design Festival er i naestu viku svo mer aetti nu ekki ad leidast. Nog af syningum og fyrirlestrum! Mun lika hitta framleidandann ad klukkunni minni thar og vid getum tha vonandi spjallad saman um hvernig thetta gengur allt saman… vid erum nefnilega baedi buin ad vera i frii og a flakki svo eg er ordin spennt ad heyra hvad taeknigaurarnir hafa verid ad bauka a medan!

Eg aetla ad hafa thetta stutt nuna, thvi eg tharf ad fara ad stussast meira, skanna inn skolagjaldarukkun og senda a lin og fara i Ikea ad kaupa hillur og skrifbordslampa…

Heyrumst betur seinna!

p.s: a Facebook er buid ad tagga nokkrar myndir af mer og Kidda i brudkaupinu i Jodhpur… thid getid liklega sed thaer a profilnum minum.

GOA – framhald og Mumbai (Bombay)

september 6, 2009

Vid vorum rekin ut med varla 5 minutna fyrirvara um daginn og thess vegna vard thetta svolitid snubbott tharna i lokin. Thegar eg taladi um ad “synda” um Old Goa of Panaji tha var eg ad visa til thess ad thad var hellidemba allan daginn. Thangad til tha hofdum vid verid skuggalega heppin med monsoon rigninguna, alltaf nykomin inn i hus eda bil thegar hun skall a. Thessi dagur tharna i Goa var hins vegar eins og kroftug sturta allan daginn, en vid letum thad ekki stoppa okkur. Eg hafdi verid svo forsjal ad kaupa regn-ponsjoa a Islandi til ad taka med til Indlands, nokkud sem annad hundblautt turistapar ofundadi okkur mikid af. Vid thrommudum i ponsjounum undir regnhlifum i rigningunni og thad var bara mjog notalegt, vid urdum nu samt alveg rennandi blaut upp ad laerum, en thad munadi nu samt miklu ad vera ekki blautur a rassinum og kroppnum allan daginn. Badir baeirnir voru mjog heillandi, portugolsk hus og katholskar kirkjur i bland vid litrik hindua hof og indverska menningu. Thad er mjog mikid af katholskum krossum i Goa, nanast einn kross vid hvert hus, auk nokkurra krossa uti a gotu. Okkur fannst mjog skemmtilegt ad sja hvernig theim er bara leyft ad vera tharna thratt fyrir ad
minnihlutinn tharna se kristinnar truar. Margir hofdu meira ad segja verid skreyttir med Hindu-blomakronsum og litrikum ljosum. Mjog saett. Thad var annars mjog spes vid thessar borgir hvad thaer voru svolitid sjuskadar thratt fyrir allar thessar fallegu byggingar, og mer fannst mjog aberandi hvad margir stadir eru skringilega innrettadir. Svolitid eins og folk tharna hafi tekid thessu ollu sem svo ofsalega sjalfsogdu ad theim finnist ekkert ad thvi ad hengja allskonar ljot budarskilti og auglysingar utan a gullfallega byggingu. I staerstu katholsku kirkjunni i Old Goa var t.d. verid ad gera hana alla upp og greinilega verid ad reyna ad gera thetta ad meira addrattarafli fyrir turista. Salmataflan var hins vegar einnhverskonar ljosaskilti med skokkum limstofum… svona eins og fyrir utan biohus, og fyrir framan thad var plastdukka i glansandi polyesterhvitri blundu-jotu. Jesubarnid sko.

Nuna erum vid komin til Mumbai og gistum hja Danesh og fjolskyldu hans, bekkjarbrodur Kidda ur Warwick. Thau bua a besta stad i Mumbai, i gomlu fallegu husi alveg i midjunni, en samt i godu hverfi. Vid Kiddi fengum risastort svefnherbergi med skapum og ser badherbergi med sturtu og ollu bara fyrir okkur tvo! Eins og besta hotel.Mamma hans er lika alveg yndisleg. O ja, svo eru lika svalir a herberginu okkar thar sem vid skemmtum okkur vid ad fylgjast med ledurblokum prila um trein fyrir utan og borda litla avexti a theim. Thaer eru eins og apar med vaengi og klaer, pinulitil kringlott augu og svo smjottudu thaer med opin bleikan munninn a avoxtunum. Fyndin dyr.

Mumbai (Bombay) leggst mun betur i okkur en Delhi. I Delhi gatum vid ekki labbad neitt i fridi an thess ad vera umkringd af leigubilum, solumonnum og svindlurum sem oskrudu hver i kappi vid annan a okkur. Algjorlega otholandi. Vid gatum ekkert gert og eg tok t.d. engar myndir thvi eg fekk bara ekki faeri a thvi! Svo var lika mikid starad a mig, ur ollum attum af ollu thessu folki! Svosum alveg haegt ad blokka thad ut, thad er tho allavega skarra en svona latino gaurar sem elta mann og klipa i mann. Og krakkarnir benda mikid og veifa og verda faranlega glod thegar eg veifa a moti, sem er bara skemmtilegt. Eg er farin ad skilja hvernig fraegu folki lidur!! Eg vaeri alveg til i ad gefa Delhi annan sens, en eg myndi alvarlega ihuga ad labba um goturnar i burku. Bara til ad fa ad upplifa borgina alveg oaareitt. Mumbai er hinsvegar mun vestraenni og thvi skerum vid okkur ekki eins mikid ur. Her er lika mjog mikid af fallegum byggingum, sem eru virtar og theim haldid vid. I Delhi eru flestar gomlu byggingarnar i gamla baenum ad nidurnislu komnar og hysa bara gamlar voruskemmur, sjoppur eda storar fataekar fjolkskyldur. I gaer eyddum vid deginum i ad rolta um Mumbai med Lonely Planet vid hond og tokum lika mikid af myndum. I gaerkvoldi forum vid med Danesh og vinum hans a adal
krikketleikvanginn herna i borginni, en thar eru nokkrir finir mjog finir veitingastadir og barir. Thangad mega adeins “club members” koma, en fjolskyldurnar theirra eru med svoleidis kort. Thar splaestu their i fullt fullt af mat og afengi sem var vist rosa odyrt vegna kortanna theirra godu.  (Indverksa gestrisnins er alveg otruleg!) Eftir krikketklubbinn toku their okkur med ser a einhvern voda flottan skemmtistad, sem var meira ad segja med tjorn med fljotandi blomum i a midju dansgolfinu. Frekar furdulegt samt thar sem margir stigu ovart i hana og bolvudu henni i drasl. En samt… voda klassi ha… Thad er reyndar svolitill tilfinningarussibani ad ferdast um thetta land, t.d. thegar vid vorum ad keyra a leidinni a klubbinn komu betlarar og bonkudu a gluggana a bilnum til ad bidja um olmusu. Ein ung og vannaerd modir med hagratandi barn kom a gluggann hja okkur a einum ljosunum og thad gjorsamlega kramdi hjartad mitt. Vid vorum hins vegar ekki med skiptimynt a okkur tharna og keyrdum thvi i burtu an thess ad gefa neitt. Mer leid omurlega ad keyra svona i burtu fra thessu og lata svo skofla i mig mat og drykk a dyrum stad. En thad er svo gigantiskt mikil fataekt i thessu landi! Yfir 50% af ibuum Mumbai lifa i “slums” (Spytna hrugur og plastpokar fyrir hus) eda a gotunni.

I dag tokum vid sma verslunarleidangur og tsjill med Danesh, vid vorum litid sem ekkert buin ad kaupa hingad til thvi vid erum med litlar toskur og nenntum ekki ad bera dot yfir allt Indland. A morgun klarum vid svo ad skoda nokkra fleiri merkilega stadi i Mumbai, svo flug til London annad kvold! Faranlega fljott ad lida allt saman!

Takk fyrir allar kvedjurnar!

Og takk Gurry og Gretar fyrir ad lana okkur Lonely Planet, alveg brilliant ad hafa hana med. Hun er reyndar ordin pinu lifud greyid… eydimorkin og svo monsoon rigning… hehh…

Thorunn (og Kiddi bidur ad heilsa)

GOA

september 3, 2009

Komum til Goa i fyrradag. Gesthusid sem vid gistum a er draumi likast. Algjort aedi. Vid erum med RISA stora penthouse ibud, hatt til lofts med storum svolum og munstrudum flisum a golfunum, allt i 19 aldar portugolskum stil. Husgognin oll antikhusgogn, mjog falleg, t.d. oliulampar sem buid er ad breyta i rafmagnslampa. Allt alveg yndislega hreint og fint og maturinn a stadnum mjog godur. Baedi haegt ad fa mjog godan “continental” mat og indverski maturinn algjort aedi. Gott fyrir okkur sem erum buin ad lifa a fronskum kartoflum og ristudu braudi sidustu vikuna vegna skorts a okryddudum mat. (Lyktin af karri let magana i okkur fara i heljarstokk medan vid vorum med thessa magakveisu). Vid erum thvi smatt og smatt ad fikra okkur i indverska matinn og fengum okkur t.d. mjog godan Goa mat i Panaji hofudborg Goa i hadeginu. Vid erum afskaplega anaegd ad vera farin ad finnast indverski maturinn aftur godur, thvi vid vorum svo hraedd um ad vid myndum aldrei aftur fa lyst a honum. Thorunn er mjog gjorn a ad geta aldrei aftur bordad mat sem hun bordar og verdur veik af. En ekki i thetta skiptid! Vuhuuuu! (Nema hun leggur ekki alveg strax i indverskar smjorsosur.)

Nog af mat og meira um ferdalag: I gaer roltum vid eftir strondunum i Goa, fra okkar strond Sinquerim – Candolim – Calangute og tokum svo bil til Anjuna og Baga. Vid vorum afskaplega heppin med vedur, thykk sky yfir allan daginn og hitinn thaegilegur. Vid lentum ekki i rigningu fyrr en vid vorum nysest inn a veitingastad. Vid vorum reyndar svolitid vitlaus ad paela ekkert i thvi ad setja a okkur solarvorn, (enda grar himinn!) og erum thvi bleikir bondar nuna. (stuttermabolafar). Furdulegt ad brenna fyrst nuna eftir ad hafa verid i viku i eydimorkinni! Strendurnar eru annars frekar liflausar, enda monsoon timinn. Thaer eru lika frekar skitugar, enda sjorinn ufinn og duglegur ad skola rusli upp a land. Hofum sed fallegri strendur, en folkid herna er mun vinalegra en i Delhi og vid getum labbad um toluvert oareitt. I dag erum vid buin ad synda um Old Goa og Panaji hofudborg Goa.

Netkaffid er ad loka nuna…

Meira seinna!

Thorunn og Kiddi

‘a leidinni til goa

september 1, 2009

Stutt kvedja af flugvellinum.

Brudkaupid vard alltaf svakalegra og svakalegra og sidasta kvoldid var a staerd vid thjodhatid med brudhjonunum sitjandi a upplystu svidi, flugeldasyningu og ad sjalfsogdu var skoflad i mann mat. Kjalkarnir a okkur urdu eftir i Jodhpur. Allir alveg faranlega yndislega gestrisnir og vildu allt fyrir okkur gera. Daginn eftir skodudum Meherangan fort i Jodhpur sem er otrulega fallegt og hollina thar sem vid hittum brudhjonin morguninn eftir brudkaupsnottina sem thau eyddu thar! Eftir Jodhpur forum vid a sma ferdalag um Rajasthan, heimsottum baeinn Jaisalmer sem er i midri eydimorkinni og er eiginlega eins og risastor sandkastali (virkid sem gnaefir yfir baeinn) med nokkrum litlum kassalaga husum hrugad thett upp ad. Folkid er alveg yndislega litrikt og skrautlegt i klaedaburdi og gamlir kallar med turbana og mikid og sitt skegg. Magnadur stadur. Vid gistum a uturflurudu hoteli sem var skorid ut i thennan sama sandstein og gatum horft yfir allan baeinn og sed virkid upplyst af thakinu. Vid forum eitt kvoldid a 2 tima kamelreid um eydimorkina i solarlaginu, sem var frabaert… en bossarnir enntha ad jafna sig! og gistum undir berum stjornubjortum himni i eina nott. Vid komum til Delhi i fyrradag en gerdum litid annad thar en ad slaka a a hotelinu borda svolitid og fara oft a klosettid thvi vid vorum komin med eitthvad nasty dot i magann. Vid drosludum okkur tho a lappir kl 6 i gaermorgun og tokum rutu til Agra til ad sja Taj Mahal. Su ferd var eiginlega vaegast sagt hraedileg, en eg segi fra thvi sidar. Taj Mahal var samt ROSALEGT. Omannlegt. Thratt fyrir ad vid vaerum ansi veik og ful thegar vid komum thangad! Vid komum upp a hotel kl 4 i nott (attum ad koma kl 20!), eftir nanast solarhrings turistarutuhelviti, erum buin ad sofa 3 tima, en vid erum samt hress og fersk og bindum godar vonir vid tsjill a Goa. Vid erum lika byrjud ad taka syklalyf svo magarnir eru adeins ad jafna sig.

Jaeja, vid erum buin ad finna Costa kaffihus herna a otrulega fina flotta domestic flugvellinum herna i Delhi og okkur thyrstir i almennilegt kaffi og croissant. Svo vid segjum bara bless ad sinni!

Thorunn og Kiddi

Bollywood brudkaup

ágúst 25, 2009

Jaeja krakkar…

vid erum bara ordlaus.

Vid erum buin ad vera i stifu brudkaupsprogrammi sidan a laugardaginn. Vid gistum a 4 eda 5 stjornu hoteli med thjona og bilstjora hlaupandi i kringum okkur. A kvoldin forum vid i 1000 – 2000 manna veislur i hallargordum med matarfjollum og skemmtiatridum, ledurblokurnar sveimandi yfir i stjornubjortum himninum i eydimorkinni. Matnum og afenginu er bokstaflega trodid ofan i okkur (barthjonarnir ganga a milli med tilraunaglos og sprautur og segja manni bara ad segja “aaaaaaah”). Glingrid er algjorlega over the top og litadyrdin er aedisleg. Vid erum buin ad dansa af okkur faeturna vid alla helstu hittarana i indverskum utgafum (meira ad segja “pump up the jam”). Thorunn er buin ad vera eins og gaeludyr stelpnanna sem hafa dressad hana upp Bollywood style med ollu tilheyrandi, en thad besta er eftir samt i kvold: tha faer hun ad klaedast sari. Hun er lika buin ad fa “henna tattoo” a badar hendur, rosa flott! Kiddi var lika dressadur upp i hefdbundinn indverskan klaednad, hnesida mussu “gupta” og hvitar nattbuxur (thaer heita i alvurunni fyjamas.

Brudkaupid sjalft var i dag, Megha (brudurin) var klaedd i bleikan sari med handleggina hladna armbondum og hofudskraut. Allt alsett glitrandi steinum. Handleggirnir og faeturnir voru alsettir henna tattoo sem hafdi tekid heilan dag ad teikna a hana. Rosalega falleg!

Vid hofum reyndar litid sed af Jodhpur sjalfri, nema ut um bilgluggana a medan bilstjorin sveigir fram hja beljunum og svinar fyrir hjolreidamenn. Vid erum alltaf skithraedd um ad bilstjorinn keyri a belju, thvi thad myndi thyda ad hann myndi verda brytjadur i spad af aestum mugnum. Thaer eru ju heilagar. En upplifunin af thessari 4 daga hatid baetir alveg vel upp fyrir thad. Thad er lika svo ofbodslega heitt ad flestir fara bara inn i loftkaelinguna eftir hadegi og hvila sig.

A morgun keyrum vid til Jaisalmer sem er lika innan Rajasthan herads. Vid erum ad reyna ad boka hotel thar, svo thad a eftir ad koma betur i ljos hvar vid verdum. Vid aetlum ad gista fyrst i eina nott i Manvar a leidinni, sem eru tjaldbudir i midri eydimorkinni mitt a milli Jodhpur og Jaisalmer.

Annars er alveg otrulegt hvad thad eru miklar andstaedur i thessu landi, a medan vid lifum herna eins og kongafolk keyrum vid fram hja folki sem a EKKERT, og sefur uti a gangstettunum. Okkur finnst alveg hraedilega erfitt ad strunsa afram a medan litil born i totralegum klaedum toga i fotin okkar og bidja um pening. En vid getum ekki gefid theim neitt, thvi ef vid gerum thad mun bara koma enn staerri skari af theim ad bidja okkur um meira. Thetta er svo svakalegur fjoldi! Um leid verdur thad kannski audveldara ad horfa fram hja thvi, thvi ad manni finnst madur bara algjorlega hjalparlaus. Vid getum ekki lagad thetta, allavega ekki herna. Ekki nema gefa i hjalparstarf t.d. thegar vid komum heim, sem vid hvetjum alla til ad gera!

Maturinn er ofsalega godur herna, en hann er mjog bragdmikill, kryddadur og feitur. Vid erum eiginlega komin med pinu nog nuna, magarnir okkar ekki ad hondla thetta, svo maltidirnar okkar i gaer og i dag hafa ad mestu verid lassi (jogurtdrykkur) saltkex og kok. En vid erum ad jafna okkur nuna.

Bless kex!

Thorunn og Kiddi

Delhi – Jodhpur

ágúst 22, 2009

Stutt kvedja hedan ur Jodhpur!

Lentum i Delhi i gaermorgun og vorum sott af bilstjoranum okkar a flugvellinum. (Hann var med svona skilti med nafninu hans Kidda a, voda fancy!) Vid fengum svo ad geyma farangurinn okkar hja Chait bekkjarfelaga Kidda ur Warwick, fengum samosur og te hja mommu hans og radleggingar um hvad vid gaetum gert thennan dag i Delhi. Bilstjorinn keyrdi okkur svo ut um allt i Delhi, Connaught Place (midbaerinn) thar sem vid slogum af okkur solumenn, betlara og thjofa eins og flugur, India Gate, hus forsetans, og skodudum “Humayums Tomb” sem er grafhysi i arabiskum stil, med ledurblokum og tannlausum sopara sem leiddi okkur um stadinn og benti i allar attir. Vid vorum nysest i bilinn thegar himnarnir urdu KOLSVARTIR…. og tha kom steypiregn, og vatnid ox og ox… og tha kom steypiregn, og vatnid ox og ox…. KLIKKUD RIGNING! Syntum naestum thvi ut ur bilnum thegar thad stytti upp, i alvorunni! Tokum svo naeturlest med Chait og 3 odrum bekkjarsystkinum hans til Jodhpur, frekar subbuleg lest en stemming samt. Gatum sofid agaetlega. Haegt var ad velja hvort madur vildi fara a “vestraent” eda “indverskt” klosett i lestinni. Hver vill eiginlega “indverskt”?? (Hola i golfinu.) Lestarstodin var illa lyktandi og full af folki i allskonar litrikum klaednadi. Vorum sott thadan og keyrd a hotelid okkar sem er i bodi brudhjonanna… sem er GEDVEIKT!! Thvilikar andstaedur sem madur er ad upplifa herna…

Later aligator.

Kiddi og Thorunn

London-Delhi-Jodhpur-Jaisalmer-Delhi-Agra-Goa-Mumbai-London

ágúst 16, 2009

Sjalalalalaaaaa… ævintýri enn gerast!

Ég og Kiddi erum að fara til Indlands!

Ég flýg út til London á þriðjudagsmorgun og Kiddi á miðvikudaginn. Svo fljúgum við frá London til Delhi á fimmtudaginn, þaðan höldum við svo áfram til Jodhpur þar sem við erum að fara í brúðkaup hjá Megha bekkjarsystur Kidda úr Warwick. Mega brúðkaup. Sem teygir sig yfir 4 daga. Mega spenningur. Mega hiti. Mega monsoon. Mega fjör. Mega mega mega… bara geðveikt! Svo ætlum við líka að ferðast um Indland eftir brúðkaupsbrjálæðið, í grófum dráttum: Jaisalmer, Delhi, Agra, Goa og Mumbai.

Við ætlum að reyna að stoppa við og við á netkaffihúsum og skrá ferðasöguna hér, okkur og öðrum til yndisauka og ánægju. Við munum að sjálfsögðu taka gommu af myndum líka.

Núna erum við bara á milljón að pakka og ganga frá öllu, enda er ég líka að flytja til London í leiðinni þar sem ég byrja í mastersnámi í “Design Products” við Royal College of Arts í lok September. Kiddi kemur hins vegar heim til Íslands eftir Indlandsferðina og verður þar allavega á meðan hann leitar sér að vinnu í London.

Fylgist spennt með, vúhúúú…

Ég er komin heim í heiðardalinn.

júlí 1, 2008

Komin heim í foreldrahús. Í heilu lagi, án þess að hafa þurft að borga yfirvigt eða vera handtekin vegna gruns um sprengju í ferðatöskunni minni. (Klukkan mín, útskriftarverkefnið mitt í kassa, teipaðir rafmagnsvírar og tannhjól…)

Dröslaðist með tvær töskur, eina 25 kílóa ferðatösku, eina stóra hliðartösku og eina handfarangurstösku fulla af bókum og dóti. Hjálpsamir breskir stórir strákar tilbúnir til að bera töskurnar mínar upp og niður stiga á lestarstöðinni og flugvellinum svo ég svitnaði varla. Svitnaði samt vel við það að “vippa” brosandii ca 15 kg handfarangurstöskunni minni upp í farangurshólfið í flugvélinni, svo hún liti út fyrir að vera innan leyfilegra þyngdarmarka.

Radiohead voru frábærir. Reyndar alveg rosalega stórir tónleikar, á stórum krikketleikvangi utandyra, svo ég rétt sá í hausana á einhverjum ogguponsulitlum maurum í fjarska ef Kiddi lyfti mér upp. Stemmingin var samt góð, sándið gott og flott sviðsmynd. Fólk söng með lögunum og þeir voru klappaðir oft upp. Veðrið var líka frábært, fallegt sólarlag, en það hafði hellirignt allan daginn.

Manchester var fín. Mjög mikið af skemmtilegum búðum og kaffihúsum þarna, mikið af vintage fötum og dóti. Gaman að skoða. Örugglega samt enn skemmtilegra að kaupa, ef maður á peninig og pláss í ferðatösku. Við gistum á hóteli í miðbænum sem viði fengum sæmilega ódýrt miðað við háannatíma og staðsetningu. Við gengum í gegnum langa þrönga teppalagða ganga með ljótu veggfóðri, kitsch myndum á veggjunum og öðru hverju ljósi blikkandi eða dauðu í endalausa ranghala áður en við komum að herberginu okkar. Herbergið okkar var gluggalaust, með blikkandi flúorperu á baðherberginu, flagnandi veggfóðri og suðandi loftkælingu. Silfurskotta á baðinu. Herbergið minnti mig á Barton Fink, mynd eftir Cohen bræður þar sem aðalsöguhetjan býr einmitt í svipuðu hótelherbergi, með flagnandi veggfóðri, suðandi loftkælingu, moskítóflugum og skrattanum í næsta herbergi. (Mæli með henni.)

Gangarnir voru hins vegar eins og klipptir úr The Shining eftir Kubrick, og við vorum endalaust að hræða hvort annað með því að kvóta í þá mynd. T.d: “Sástu tvíburana?”. Eða: “Nei, við skulum sleppa lyftunni, hún er örugglega bara full af blóði.” Gluggalaust herbergið ól líka af sér enn svartari húmor sem tiplaði varlega á “Fritzl” nótum. (Kannski aðeins of snemmt?).

Big Ideas: Don’t get any – ‘Nude’ by Radiohead

júní 25, 2008

Þetta er geðveikt:

Svolítið lengi að byrja, en ég mæli með að bíða aðeins… og þá ættu Radiohead aðdáendur að fara að þekkja lagið.