*Hrollur*

By Þórunn

Ég skrapp niður í bæ áðan. Það er sól, ca 15stiga hiti og ROK. Ég var í svörtum síðum buxum, strigaskóm, bol, peysu og gallajakka og fékk alveg væna gæsahúð þegar rokið reif í mig. Fólk var samt upp til hópa í stuttbuxum, flip-flops og hlírabolum! Og margir gaurar bara með bera bumbuna út í loftið. Bera kúlulaga bjórvömb. Og gellur sveiflandi björgunarhringjunum sínum út undan þröngum magabolum. Og litlir krakkar í strandfatnaði!!

Allir talandi um hvað veðrið sé “yndislegt” og “hressandi” eftir “hitann” um daginn. Þá var 25 stiga hiti… volg gola. Kommon! Mér fannst það FULLKOMIÐ. Hvað er eiginlega í gangi? Ég er reyndar búin að sjá fólk spígspora um á peysunni í allan vetur… og stelpur tipla um berleggjaðar í ballerínuskóm á meðan ég var dúðuð í pólfara-úlpuna mína og í ullarsokkum. Þessi þjóð hlýtur að hafa einhverja frábæra líkamshitun, kannski svona ofsalega góða einangrun af öllum þessum “chips” og “pies” sem þau borða…

Og af hverju eru Bretar eiginlega að eyða svona miklum pening í að fjölmenna á strendur Benidorm eða Ibiza þegar megninu af henni finnst 25 stiga hiti “ógisssla heitt.”?

Ég skil ekki. Ég er bara alveg gáttuð. Mér líður eins og algjöru frík þegar ég fer út úr húsi í jakka.

 

 

3 svör to “*Hrollur*”

  1. Guðrún Inga segir:

    Ég skal fá 25 stiga hita!!

  2. vilborg segir:

    kannski ég safni bara í björgunarhring í stadinn fyrir ad fjárfesta í lopapeysu… hehe… ég er nefnilega alveg eins, á vodalega erfitt med ad leggja sokkabuksunum!
    alltaf gaman ad heyra hvad cov kid er ad bralla, knus, bogga

  3. hilda segir:

    ég er ennþá í gammó. það er töff.

Skildu eftir svar