Lundúnir

By Þórunn

Jæja, nú er ég lent í hringiðunni hér í London. Hef ótrúlega fína íbúð til að búa í hér í Bethnal Green, sem er í Austur London, nálægt Liverpool Street. Ég og Kiddi höfðum íbúðaskipti við stjúpsystur hans sem býr hér í borg og eru þau því íbúðinni okkar á Vesturgötunni heima, en Kiddi greyið var sendur í geymslu í kjallarholu í Hlíðunum í ca 1 og hálfan mánuð. Þetta er náttúrulega ódýrasta lausnin því leigan í London er alveg morðdýr. Kiddi fer svo í skóla í Warwick í Coventry þar sem hann ætlar að nema “Hagfræði og fjármál” og ljúka því með meistaragráðu næsta sumar. Ég mun vera í starfsnámi hjá japönskum hönnuði sem heitir Tomoko Azumi næstu 3 mánuði og svo fylgja Kidda til Coventry og reyna að finna mér einhverja vinnu þar… eða í nágreninu eða London í 1 ár.

vedurspa

Það er frekar súrt að yfirgefa bongóblíðuna í Reykjavík og koma hingað í þrumuveður… en það var nú samt svolítið ævintýralegt að lenda í svona veðri. Ég var að rölta um Camden Market í dag þegar allt í einu byrjaði að rigna eins og skrattinn og þrumurnar drundu um allt. Ég hljóp í skjól inn í kósí tehús og horfði á skýfallið og blossana út um opnar stórar dyr á meðan ég gæddi mér á bláberjamöffins og yndislega góðu tei (sem ég keypti einn pakka af til að hafa með mér heim) Hafði verið að spá í að troða mér inn á Starbucks sem var troðfullt út úr dyrum stuttu áður og næla mér í kaffi en í staðinn hrakti rigningin mig inn á þennan yndislega stað. Um leið og ég kláraði síðasta sopann af teinu stytti upp og ég gat haldið áfram að þræða markaðinn. Svolítið gaman bara að vera ein að dúlla sér svona.

Ég byrja ekki í starfsnáminu fyrr en eftir viku svo ég ætla að taka smá túristaskorpu áður en “dagleg rútína” byrjar. Kíkja á söfn og svona. Alex kemur svo til mín í nokkra daga núna á þriðjudaginn.

Í gærkvöldi horfði ég á Bollywood söngleikjastíls útgáfu af “Pride and Prejudice”. Litadýrð glimmer og trylltir indverskir dansar í bland við hallærislega söngva um ástina og Mr. Darcy. Frekar fyndið.

Cheers mates and luts of luv.

P.s. Ég er nýbúin að öppdeita heimasíðuna mína, búin að setja inn lokaverkefnið mitt og önnur ný verk. Kíkið endilega á ;)

4 svör to “Lundúnir”

  1. hilda segir:

    æj en gott að fá smá fréttir af þér. heyrist þú hafa það bara nokkuð gott þarna í rigningunni. :)

  2. Gugga segir:

    gaman að alex ætli að kíkja á þig og njóta með þér stórborgarlífsins ;) ætlaru að fá þér enskt símanúmer?

  3. Erla segir:

    Hlakka til að fylgjast með þér og ævintýrum þínum í Lundúnaborg;)

  4. Þórunn segir:

    jú, býst við að fá mér enskt símanúmer fljótlega… ætla að kynna mér dílana og svona. En annars get ég hringt frítt í heimasíma á Íslandi úr heimasímanum hér þar sem ég bý næstu 2 og hálfan mánuðinn. Svo ef þið viljið spjalla þá hringið þið bara stutt í mig, og ég hringi til baka og þá getum við blaðrað alveg heillengi án þess að það kosti krónu! sneddí? Mér finnst það.

Skildu eftir svar